Leiðarvísir um þorp
Ljóðabók (2017)
Þoka situr á fjallstoppi eins og hárkolla
Hún prjónar kindur með hvítum þráðum
Í bókinni er að finna leiðbeiningar um staði, tímabil, manneskjur og minningar. Leiðbeinandinn stendur í mýri, eltir blaðbera og styttir sér leið í gegnum garð nágrannans, áður en hann vísar loks lesandanum aftur heim. En þorpið hefur áhrif á þá sem heimsækja það
– og gestirnir hafa áhrif á þorpið.
Kápa: Francisca Pageo
Útgefandi: Partus / Meðgönguljóð